Bókasafn Hafnarfjarðar

Í apríl 2006 var undirritaður samningur þess efnis að Hafnarfjarðarbær muni hýsa þýska bókasafnið fyrir Hollvinafélag Þýska bókasafnsins á Íslandi. Þýska bókasafnið mun í framtíðinni verða sérdeild innan Bókasafns Hafnarfjarðar í væntanlegri viðbyggingu. Eins og stendur er hins vegar nauðsynlegt að skipta safnkostinum á milli hæða vegna plássleysis.

Barnastarf Þýska bókasafnsins á vegum Þýsk-íslenska tengslanetsins
Barnastarfið er starfrækt yfir vetrarmánuðina í Bókasafni Hafnarfjarðar á laugardögum. Kennarar eru Katharina Gross (s. 865 5860) og Birgit Fork.

Skráning og frekari upplýsingar:
http://netzwerk.weebly.com/fuumlr-kinder.html

  • 6-8 ára       kl. 11.00-11.45
  • 9-12 ára     kl. 12.00-12.45
  • 4-5 ára       kl. 14.00-14.45

Skráning í Gegni
Allt þýskt efni bókasafnsins hefur nú verið skráð í Gegni. Hægt er að leita á www.gegnir.is.

Útlán
Barnabækur eru á barnadeild en fullorðinsbækur eru á 3. hæð safnsins.  Dvd diskar með bíómyndum eru í mynddeild á jarðhæð. Ný, þýsk tímarit eru sömuleiðis á jarðhæð.
Safngögn úr Þýska bókasafninu eru lánuð í mánuð eða eftir samkomulagi. Skemmri útlánstími er á myndefni. Ef senda þarf safngögn út fyrir höfuðborgarsvæðið borgar viðtakandi flutningskostnað.
Starfsmenn Bókasafns Hafnarfjarðar munu taka á móti öllum þeim sem áhuga hafa á að nýta sér safnkostinn á opnunartíma bókasafnsins og auk þess veita upplýsingar í síma frá 08:00 til 10:00. Því miður er óskráð efni óaðgengilegt í geymslu en þó er undantekning á myndefni, sjá lista hér til hliðar.

Þýskumælandi bókavörður er við á eftirfarandi tímum:
Mánudaga - miðvikudaga: 13.00-18.00
Föstudaga: 13.00-18.00



 


 Leita í safnkosti   Upplýsingaveitur   Útgefið efni

Gegnir.is
Gagnagrunnur íslenskra bókasafna

Hvar.is - Landsaðgangur að gagnasöfnum og rafrænum tímaritum.

Vefbókasafnið
Safn valinna vefsíðna. 

Google Scholar

Google Scholar leitar meðal annars í tímaritagreinum. Nánar um Google Scholar.

Flýtilyklar

Markmið Bókasafns Hafnarfjarðar

Starfsáætlun 2012
  (pdf skjal 3 MB) 

Ársskýrsla 2010    
  (pdf skjal 2 MB) 

Hafnarfjarðarbær |  Bókasafn Hafnarfjarðar |  bokasafn@hafnarfjordur.is  |   Bókasafnið á Facebook
Strandgötu 1 | 220 Hafnarfirði | Sími 585 5690 | Bréfsími 585 5689