Hvað er ég með í láni?
 

Viðskiptavinir bókasafna geta fengið lykilorð sem veitir þeim aðgang að „Mínum síðum“ á vefsvæðinu Gegnir.is.  Lykilorðin eru afhent í afgreiðslu eða upplýsingaþjónustu safnsins, gegn framvísun skírteinis.

Á „Mínum síðum“ geta viðskiptavinir:

  • Séð hvað þeir eru með í láni
  • Endurnýjað lán (ef enginn biðlisti er á gögnunum)
    • Til að framlengja láni á kvikmyndum þarf að hringja í Bókasafnið
  • Sett sig á biðlista eftir gögnum sem eru í útláni
    • Leitið fyrst að bókinni, finnið eintakið og smellið á Taka frá 
  • Skoðað frátektirnar sínar og séð hvar í röðinni þeir eru
  • Skoðað fyrri útlán sín (aðeins 100 síðustu útlán sjást)
Eftir sem áður er viðskiptavinum velkomið að hringja í Bókasafnið og spyrjast fyrir um stöðu sína eða fá láni framlengt. Síminn er 585 5690.

Þar sem tónlistardeildin er enn ekki fullskráð í Gegni, sjást útlán tónlistardeildar ekki alltaf á „Mínum síðum“. Símanúmer tónlistardeildar er 585 5685.



Leiðbeiningar um innskráningu
 Innskráningarsvæðið á Gegni

Eftir að hafa fengið lykilorð frá Bókasafninu er hægt að skrá sig inn á „Mínar síður“ á Gegni.

  • Farið á Gegnir.is.
  • Vinstra megin á skjánum er kennitalan slegin inn (án bandstriks) í reitinn sem merktur er Númer og síðan lykilorðið í lykilorðareitinn.
  • Smellið á Innskrá
  • Undir flipanum „Mínar síður“ er hægt að skoða upplýsingar um útlán, frátektir og fleira.
    • Athugið: Gegni er skipt upp í nokkra safnahópa eftir landsvæðum eða safnategundum. Mikilvægt er að smella á réttan safnahóp áður en upplýsingar eru skoðaðar.
    • Ef óskað er eftir því að hafa alltaf sama safnahópinn sjálfgefinn, er hægt að biðja um það á bókasafninu.
  •  Nánari leiðbeiningar má sjá hér.

Ef vandamál koma upp er best að hafa samband við Bókasafnið. 




 Leita í safnkosti   Upplýsingaveitur   Útgefið efni

gegnir2Gegnir.is
Gagnagrunnur íslenskra bókasafna

Hvar.is - Landsaðgangur að gagnasöfnum og rafrænum tímaritum.

Vefbókasafnið
Safn valinna vefsíðna. 

Google Scholar

Google Scholar leitar meðal annars í tímaritagreinum. Nánar um Google Scholar.

Flýtilyklar

Markmið Bókasafns Hafnarfjarðar

Starfsáætlun 2012
  (pdf skjal 3 MB) 

Ársskýrsla 2010    
  (pdf skjal 2 MB) 



 

Hafnarfjarðarbær | Bókasafn Hafnarfjarðar | bokasafn@hafnarfjordur.is  |   Bókasafnið á Facebook 
Strandgötu 1 | 220 Hafnarfirði | Sími 585 5690 | Bréfsími 585 5689