Hreinsunardagar 2021 – gámar við alla grunnskóla

Fréttir

Dagana 21. maí – 24. maí 2021 standa yfir hreinsunardagar í Hafnarfirði undir yfirskriftinni HREINSUM HAFNARFJÖRÐ en þá geta íbúar í Hafnarfirði losað sig við garðúrgang í gám við grunnskóla hverfisins.

Dagana 21. maí – 24. maí 2021 standa yfir hreinsunardagar í Hafnarfirði undir yfirskriftinni HREINSUM HAFNARFJÖRÐ en þá geta íbúar í Hafnarfirði losað sig við garðúrgang í gám við grunnskóla hverfisins. Gámarnir verða við skólana frá kl. 17 föstudaginn 21. maí til loka dags mánudaginn 24. maí. Íbúar í Hafnarfirði eru hvattir til að nýta sér þjónustuna eða koma pokunum beint á Sorpu. Sjá opnunartíma á Sorpu Breiðhellu hér

Bent er á að ekki má setja garðaúrganginn í pokum í gáminn heldur skal losa úr pokunum beint í gáminn. 

Íbúar eru hvattir til að nota endurunnar umbúðir eða margnota poka við hreinsunina. Tilvalið er einnig, þar sem möguleikinn er fyrir hendi, að safna garðaúrgangi í safnhaug á góðum stað í garðinum og nýta til moltugerðar. Íbúar í öllum hverfum Hafnarfjarðar eru hvattir til að taka virkan þátt í hreinsuninni og er tilvalið í aðdraganda hreinsunardaga og á meðan á hreinsunardagar standa yfir að taka til hendinni í garðinum, snyrta runna og beð.

Breyting á fyrirkomulagi hreinsunar
Framkvæmd og fyrirkomulagi hreinsunardaga í Hafnarfirði var breytt á árinu 2020. Fordæmalausir tímar kölluðu á breytingu og hefur í ljósi árangurs, áframhaldandi sóttvarnaraðgerða og út frá umhverfissjónarmiðum verið ákveðið að halda breyttu fyrirkomulagi áfram. Breytt fyrirkomulag varð m.a. til þess að magn plastpoka og urðun tengd garðhreinsun minnkaði umtalsvert og endurnýting og moltugerð hefur aukist samhliða. 

Skyldur lóðareigenda

Að gefnu tilefni er sérstök athygli vakin á því að lóðarhöfum er skylt að halda vexti trjáa og runna á lóðinni innan lóðarmarka. Trjágróður getur skapað óþægindi og jafnvel hættu fyrir gangandi og akandi vegfarendur. Eins er lóðareigendum bent á að ákveðnar reglur gilda um byggingu á skjólvegg og grindverki innan lóðar sem mikilvægt er að kynna sér. 

Hreinsum Hafnarfjörð!

Hreinsum, endurnýtum, flokkum og plokkum!

Ábendingagátt