Ratleikur Hafnarfjarðar er útivistarleikur sem flestir ættu að orðið að kannast við. Ratleikskortið er ókeypis og er hægt að nálgast það í Þjónustuveri, Bókasafni og á sundstöðum á Höfuðborgarsvæðinu og víðar. Ekki þarf að keppa við tímann og því er tilvalið að krydda gönguferðir fjölskyldunnar með þessum skemmtilega og fróðlega leik.
Ratleikurinn 11 ára
Ratleikurinn gengur út á að finna ratleiksspjöld með hjálp ratleikskortsins og frekari vísbendinga. Á spjöldunum eru bókstafir og tölustafir og þátttakendur sýna fram á að þeir hafi fundið viðkomandi spjald með því að skrifa þessa stafi inn á lausnablað sem fylgir kortinu. Boðið er upp á þrjá styrkleikaflokka: Léttfeta, Göngugarp og Þrautakóng, en munurinn felst í fjölda þeirra spjalda sem þátttakendur leita að. Dreginn verður út einn vinningshafi í hverjum styrkleikaflokki og þrír þátttakendur að auki fá glaðning.
Fróðleiksmolar og gönguleiðir
Jónatan Garðarsson leggur leikinn nú í þriðja sinn. Hann er manna fróðastur um sögu og náttúru svæðisins og hefur tekið saman fróðleiksmola sem tengjast felustöðum ratleiksspjaldanna. Einnig eru á kortinu fimm númeraðar gönguleiðir og leiðarlýsingar Jónatans á gömlum þjóðleiðum í nágrenni Hafnarfjarðar. Kortið er í vaxandi mæli notað sem gönguleiðakort allt árið um kring.
Ert þú Léttfeti, Göngugarpur eða Þrautakóngur?
Þegar þátttakandi hefur fundið 8 ratleiksspjöld, getur hann skilað inn lausnum í Léttfeta flokki og eftir 20 spjöld er hann gjaldgengur í flokk Göngugarpa. Þátttakendur velja sjálfir hvaða spjöldum þeir leita að, en mælt er með fyrstu 8 spjöldunum fyrir Léttfeta. Sá sem afrekar að finna öll 28 spjöldin er svo sannarlega gott efni í Þrautakóng Ratleiks Hafnarfjarðar 2006. Þegar tilskildum fjölda spjalda er náð er lausnablaðinu skilað í Þjónustuver Hafnarfjarðar, Strandgötu 6, í síðasta lagi 19. september.
Góða skemmtun!